23.08.1919
Efri deild: 38. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)

120. mál, eyðing refa

Atvinnumálaráðherra (S. J ):

Jeg hafði vonast eftir því, að till. þessi gengi orðalaust fram í deildinni,. en svo virðist ekki ætla að verða. Jeg fæ nú ekki betur sjeð en að till. geti vel náð samþykki deildarinnar, hvort sem lög verða annars sett um bitvarginn eða ekki. Jeg býst raunar við því, að till. sje heldur gagnslítil, en meinlaus er hún að minsta kosti og getur þó, ef til vill, orðið til þess, að sýslunefndir taki að hugsa betur um málið. Jeg mun því verða með till.