21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

19. mál, vörutollur

Halldór Steinsson:

Fjárhagsnefnd hefir orðið á undan tímanum við meðferð þessa máls. Hefir hún athugað frv., án þess að því hafi verið vísað til hennar, og aðhylst það. — Ræður nefndin hv. deild til að samþ. frv. og mælist til þess, að því verði vísað nefndarlaust til 2. umr.