22.08.1919
Neðri deild: 42. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2243 í B-deild Alþingistíðinda. (2527)

122. mál, bætur vegna tjóns af Kötlugosinu

Gísli Sveinsson:

Jeg hefi engu við að bæta það, er hv. frsm. (J. J.) hefir tekið fram. Mjer er kunnugt um, að upplýsingar þær, er nál. greinir, eru rjettar.

Jeg vil að eins leyfa mjer að þakka þeim tveim hv. nefndum, sem um nál. hafa fjallað og tekið því vel og lagt til, að það næði fram að ganga. Óska jeg, að það verði gert, og vona, að málið gangi greiðlega. Það er áríðandi, að það gangi greitt, ekki einasta hjer í hv. deild, heldur og í hv. Ed., ef útvega á í tæka tíð fóðurbæti þann, sem till. greinir og nefndin ætlast til. Það verður að gerast sem allra fyrst.