15.08.1919
Neðri deild: 36. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2262 í B-deild Alþingistíðinda. (2549)

123. mál, landsreikningarnir 1916 og 1917

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg hefi bent á það áður, að þó að dráttur vegamálastjórans hafi að eins verið 2 dagar, þá var hann þó nægur til að skapa glundroða. Það skiftir minstu, hver drátturinn er, hann er ásökunarverður í öllum tilfellum, og afleiðingar hans eru þær sömu hvað sem lengd hans viðvíkur.