20.09.1919
Neðri deild: 69. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2432 í B-deild Alþingistíðinda. (2694)

79. mál, lögnám á umráðum og notarétti vatnsorku allrar í Sogni

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skal nú ekki lengja mikið þessar umr.

Að eins vil jeg ráða hv. þingdm. til að fella þessa rökstuddu dagskrá.

Það er vegna þess, að jeg tel það mjög óráðlegt að gefa undir fótinn með það, að ekki eigi að taka Sogsfossana í landsins þjónustu. Það mál er einfalt.