27.09.1919
Sameinað þing: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (2774)
158. mál, réttur ríkisins til vatnsorku í almenningum
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Þar sem jeg þekki til, er orðið „almenningur“ notað um land, sem enginn hefir í manna minnum helgað sjer sem tilheyrandi bygðum bólum fyr eða nú. „Afrjett“ er þá miklu víðtækara orð, þar sem það grípur yfir sjereignir sveitarfjelaga, eða jafnvel einstakra manna, sem tilheyrandi einhverri jörð.
Um ítök kirkna, sem allvíða munu vera til, ýmist í sambandi við afrjetti eða almenninga, og hagnýtt enn til upprekstrar, finst mjer næst liggja að skoða þau sem „almenning“, að fráskildum forrjettindum kirkjuráðanda til upprekstrar.