01.07.1919
Sameinað þing: 1. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)

Þingsetning

Forsætisráðherra (J. M.):

Eins og hv. þm. er kunnugt vantar enn nokkra þm., og vil jeg því, með samþykki allra flokka, fresta þingsetningarfundinum fram eftir vikunni og bíða þeirra, sem ókomnir eru.

Háttv. þm. mun síðar verða tilkynt það, hve nær fundinum verður fram haldið.

Segi jeg þar með þessum fundi frestað.