13.08.1919
Neðri deild: 34. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2511 í B-deild Alþingistíðinda. (2827)

Lausnarbeiðni stjórnarinnar

forsætisráðherra (J. M):

Eins og hv. þm. er kunnugt, hefir stjórnin símleiðis beðið hans hátign konunginn um lausn frá stjórnarstörfum, og nú í þessum svifum hefi jeg meðtekið skeyti frá h. h. konunginum, þar sem hann veitir stjórninni lausn, en biður hana jafnframt að halda áfram störfum sínum, þar til jeg geti bent á eftirmanninn.