16.07.1919
Neðri deild: 8. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í C-deild Alþingistíðinda. (2988)

56. mál, skipun læknishéraða o.fl. (Árnessýsla)

Flm. (Einar Arnórsson):

Jeg skal ekki tefja tímann með langri ræðu um þetta mál. Í greinargerð frv. má sjá, hvernig á stendur, og rök þau öll, sem til málsins liggja.

Að eins vil jeg leggja það til, að því verði vísað til allsherjarnefndar, eins og öðrum samskonar málum.