31.07.1919
Efri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í C-deild Alþingistíðinda. (3037)

75. mál, bifreiðaskattur

Kristinn Daníelsson:

Jeg hafði ætlað að taka undir með hv. 4. landsk. þm. (G. G.), að rjett væri að sýna hv. Nd. þá kurteisi, að vísa málinu til nefndar. En eftir að hafa heyrt ummæli hv. þm. Ísaf. (M. T.), að fjárhafsnefnd hafi þegar athugað málið, sje jeg ekki betur en að frv. hafi verið sýnd sú kurteisi, sem skyldugt er, og þess vegna megi ganga til atkv. um það nú þegar.