05.09.1919
Efri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í C-deild Alþingistíðinda. (3046)
75. mál, bifreiðaskattur
Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):
Út af því, sem hv. þm. Snæf. (H. St.) sagði, verð jeg að minna á það, úr því hann gerði það sjálfur, að hann var á móti frv., þegar það var til 1. umr., og greiddi atkv. á móti því, að því yrði vísað til 2. umr. Nú hefir hann snúist, og eru þó ástæður þær, er hann bar fram fyrir því, ekki nýjar og ekki þess eðlis, að menn hafi ekki haft þær í huga við 1. umr.
Hvað álögunum líður, þá hefir hv. 1. þm. Rang. (E. P.) bent á, að með öðrum þjóðum muni vera innflutningsgjald á bifreiðum, en ekki ársskattur, og hitt atriðið, að þörf sje á þessum skatti vegna þess, hversu mikið sje lagt til vega, er nokkuð valt, þegar tekið er tillit til þess, að bifreiðar eru að eins notaðar umhverfis Reykjavík.
Í fjárlögunum eru ætlaðar 50 þús. kr. á ári í næstu 4 ár til endurbyggingar á veginum milli Ingólfsfjalls og Þjórsár, gegn 1/3 endurgjalds frá Árnessýslu, en öll sýslunefnd Árnessýslu hefir neitað að taka á móti þessari fjárveitingu. — Sje jeg ekki ástæðu til að leggja þennan bifreiðaskatt á strax. þegar vegirnir eru ekki betri en það, að 4 ár skuli þurfa til að bæta slíkt Ódáðahraun, sem þessi vegur er.
Vegirnir eru ekki betri en það, að glöggustu bændafrömuðir austur í sýslum hafa sagt mjer, að það borgaði sig ekki að eiga bifreiðar til aðflutninga, meðan vegirnir væru í slíku ástandi, sem þeir nú eru í.
1. gr. frv. er ekki vel orðuð. — Virðist mjer, sem undir hana muni falla flutningabifreiðar, þar sem þær eru að sjálfsögðu ekki síður hjer en í öðrum löndum notaðar meðfram til mannflutninga.