06.08.1919
Neðri deild: 26. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í C-deild Alþingistíðinda. (3116)

72. mál, hundaskattur

Jörundur Brynjólfsson:

Við höfum, hv. 2. þm. Árn. (E. A.) og jeg, leyft okkur að bera fram brtt. við frv., en það er ekki búið að útbýta henni, og þess vegna mælist jeg til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá.