10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (3153)
149. mál, þingsköp Alþingis
Pjetur Jónsson:
Jeg vil styðja að því, að ekki verði langar umræður um þetta mál. En jeg vil skjóta þeirri spurningu til háttv. flm., hvort þeir ætlist til, að hætt verði alveg að prenta umræður, nú og framvegis, eða að eins fresta prentun, á meðan hún er eins dýr og nú.