10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (3154)

149. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Einar Arnórsson):

Jeg býst við miklum og löngum umræðum við 2. umr. og vil geyma mjer að reifa málið þangað til. Vitanlega er það á valdi þingsins, hvað það gerir í þessu máli, og ekki er hægt að binda þingið um tíma og eilífð. Þingið getur gert þær ráðstafanir seinna, sem því þykja bestar.