09.08.1919
Neðri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í C-deild Alþingistíðinda. (3471)

117. mál, loftskeytastöð í Grímsey

Gísli Sveinsson:

Jeg ætla ekki að mótmæla þessu máli á því stigi, sem það er nú. En það gefur að skilja, að setja verður málið í nefnd. Þetta er stórmál, og það á að minsta kosti undir fjármálin, ef ekki samgöngumálin.

Jeg legg til, að málið fari til samgöngumálanefndar. Og auðvitað þarf hún síðan að leita álits fjárveitinganefndar.