08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í C-deild Alþingistíðinda. (3487)
116. mál, póstferðir á Vesturlandi
Hákon Kristófersson:
Jeg verð að mótmæla því, að þessi till. sje sprottin af fordild. Það er ekki rjett, og jeg er hissa á manni eins og hv. þm. Stranda. (M. P.) að kasta þessu fram.
Háttv. þm. (M. P.) talaði um, að leiðin frá Bitru til Króksfjarðar væri ekki verri en þaðan og til Bíldudals. En á þessari leið eru einhverjar hinar verstu torfærur. Það bætir lítið úr skák, að vondur vegur bætist víða við á sömu póstleið.
Þá mintist hv. þm. (M. P.) á sparnaðinn. Jeg held, að þessi sparnaður sje aðallega í höfði hv. þm. (M. P.), og þar ekki sem skýrastur, því það er ekki hægt að færa rök að honum. Jeg efast ekki um, að á næstunni verði að framkvæma vegagerðir á nýjum vegköflum, sem afleiðing af þessari ráðstöfun, og þætti mjer ekki ólíklegt, að hv. þm. Stranda. (M. P.) líti til þess hýru auga, ef hans hjerað yrði fyrir þægindum af því. Jeg hefi þetta eftir nákunnugum manni, Sumarliða pósti. En það er nýbúið að gera við veginn yfir þorskafjarðarheiði. Hún er lítið farin nema af póstinum, og skil jeg þá ekki sparnaðinn í því að skifta um.
Jeg get tekið undir það með hv. þm. N.-Ísf. (S. St), að jeg hafi gerst flm. þessarar till. eftir ósk og áskorun kjósenda minna. Og jeg get ekki viðurkent, að við höfum farið nokkrar krókaleiðir í þessu máli. það öllu líklegra, að ýmsir aðrir hafi farið krókaleiðir til að koma hinni fyrirhuguðu breytingu á.