18.07.1919
Neðri deild: 10. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í C-deild Alþingistíðinda. (3516)
36. mál, útflutningsgjald af síld
Frsm. (Sigurður Sigurðsson):
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) ljet þess getið í fyrri ræðu sinni, að mjer mundi ekki sárt um það, þó að tollurinn fjelli á síld, veidda í sumar, jafnhliða tunnutollinum. Tilgáta hans er ekki fjarri sanni. Jeg gæti vel sætt mig við það, eftir því útliti, sem nú er á um verð á síld.
En svo skildist mjer á síðari ræðu hv. þm. (M. Ó.), að hann teldi það ekki fjarri sanni, að þessi tollhækkun legðist á þá síld, er veiðast kynni í sumar, þar sem gera mætti ráð fyrir góðri sölu á síldinni og háu verði. Jeg vil því gefa honum tækifæri til að koma með brtt. um þetta, með því að fara þess á leit við hæstv. forseta að taka málið af dagskrá. Annars er jeg sammála hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) um rjettmæti síldartollsins.
Viðvíkjandi 2. brtt. fjárhagsnefndar skal jeg taka það fram, að mjer finst eðlilegast, að lögin hjetu lög um útflutningsgjald af síld, og vildi því helst, að brtt. fengi fram að ganga. (M. G.: Það er best að taka hana aftur). Jeg heyri, að form. fjárhagsnefndar (M. G.) vill taka hana aftur, og skal jeg þá ekki vera á móti því. (E. A.: Jeg tek hana þá upp).