21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í C-deild Alþingistíðinda. (3519)
36. mál, útflutningsgjald af síld
Fjármálaráðherra (S. E.):
Samkvæmt tillögu stjórnarinnar var lagt til, að lagt væri 3 kr. útflutningsgjald á hverja síldartunnu, en hv. Nd. hækkaði það um 1 kr. á hverja tunnu, upp í 4 kr.
Eftir áætlun stjórnarinnar átti tekjuauki af frv. þessu að verða 375 þúsund krónur, og var þá gert ráð fyrir, að 150 þús. tunnur öfluðust, en útflutningsgjaldið hefir áður verið 50 aurar af hverri tunnu.
Eftir breytingu þá, er hv. Nd. hefir gert á frv., ætti tekjuaukinn að verða um miljón, og hefir stjórnin fallist á þessa breytingu.
Jeg veit, að mörgum kann að þykja gjaldið fullhátt, en hins er þó gætandi, að skattstofn þessi virðist vel til þess fallinn að bera há gjöld.
Íslendingar hafa stórgrætt á síldinni undanfarin ár, svo þá munar ekki svo mikið um að greiða skattinn, en hitt er þó meira um vert, og það er, að mikill hluti hans kemur rjettilega niður á erlendum þjóðum, sem sópa saman fje hjer við strendur landsins.
Mál þetta hefir verið rætt svo oft hjer á Alþingi, að jeg finn ekki ástæðu til að lengja mál mitt, en leyfi mjer að stinga upp á því, að því verði vísað til fjárhagsnefndar.