08.07.1919
Neðri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (354)

32. mál, sala á hrossum til útlanda

Bjarni Jónsson:

Jeg vil að eins gera þá fyrirspurn til stjórnarinnar, hvort hún hafi ráðið þessu máli svo til lykta, að hún geti ekki gengið að betri boðum, því jeg hefi vissu fyrir því, að nokkrir menn vilja gefa meira fyrir hrossin heldur en hjer er ákveðið.