08.07.1919
Neðri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

32. mál, sala á hrossum til útlanda

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg þykist mega fullyrða, að síðar meir muni vera hægt að veita hv. 2. þm. Rang. (E. J.) þær upplýsingar í málinu, er fullnægjandi megi telja.

Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. Dala. (B. J.) vil jeg láta þess getið, að málið hefir að öllu leyti verið í höndum útflutningsnefndar. Ráðuneytið hefir því ekki haft dagleg kynni af málinu, og leyfi jeg mjer því að vísa fyrirspurninni til hv. þm. S.-Þ. (P. J.), sem sæti hefir átt í þeirri nefnd. Persónulega er mjer með öllu ókunnugt um, að hærra verð hafi verið í boði heldur en það, sem hjer er boðið.