06.08.1919
Efri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í C-deild Alþingistíðinda. (3588)

15. mál, einkaleyfi

Frsm. (Magnús Torfason):

Nefndinni er ekkert kappsmál um það að fella burt 3. málsgr. 3. gr., en henni þótti skrítið, að gert væri ráð fyrir þessu í lögunum, þar sem enginn sjerfræðingur fjallar um þessi mál; virðist oss þar með vera gert ráð fyrir stofnun, sem alls ekki er til.