14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í C-deild Alþingistíðinda. (3645)

54. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkauptún

Einar Arnórsson:

Jeg vildi að eins gera þá athugasemd, að samskonar málum hefir áður verið vísað til sjávarútvegsnefndar hjer á þingi, og mjer finst rjettast, að svo verði einnig gert í þetta skifti.