08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1140 í C-deild Alþingistíðinda. (3715)

87. mál, dýralæknar

Frsm. (Sigurður Sigurðsson):

Jeg vil leyfa mjer að vekja athygli háttv. deildarmanna á viðaukatill. landbúnaðarnefndar á þgskj. 305, sem er fram komin út af athugasemdum, er gerðar voru á frv. við 2. umr. málsins.

Brtt. er þess efnis, að breyting sú, sem ákveðin er í 1. gr. frv. um fjölgun dýralækna, komi til framkvæmda jafnóðum og ný læknisefni fást í embættin. Jeg vona, að þessari athugasemd verði vel tekið.