23.07.1919
Neðri deild: 14. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í C-deild Alþingistíðinda. (3885)
77. mál, rannsókn símleiða Árnessýslu
Björn R. Stefánsson:
Það er langt frá mjer að vilja leggja á móti þessu máli, eða vefengja nokkuð það, sem hv. 1. þm. Árn. (S. S.) hefir sagt. En við vitum, að víða er þörf, og margt kallar að. Enn er eftir að leggja fjölda símalínur, sem nauðsynlegar eru. Jeg álit þess vegna heppilegast, að þessari umr. verði frestað og að málinu verði vísað til samgöngumálanefndar, svo að hún geti athugað það, ásamt öðrum samskonar till., sem fyrir liggja. Það var að vísu svo að heyra á hv. 1. þm. Árn. (S. S.), að hjer þyrfti að vinda bráðan bug að, en jeg get ekki sjeð, að þetta mundi tefja málið svo mikið. Jeg veit, að nefndin mundi vinna svo fljótt að málinu, sem unt væri. En jeg álít rjett að bera málið undir landssímastjórann, svo að hann, ásamt samgöngumálanefnd, athugi þessa þingsályktunartill., jafnframt öðrum samskonar till., sem fyrir liggja.