11.09.1919
Neðri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í C-deild Alþingistíðinda. (3912)

147. mál, lán til Flóaáveitunnar

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skal játa það, að jeg hefi ekki tekið eftir því, sem hæstv. forsætisráðh. (J. M.) benti á, en jeg sje, að það muni rjettur skilningur. Jeg er yfirleitt hlyntur öllu því, sem ljettir á landssjóði á þessum erfiðu tímum, og þar sem þessi brtt. fer í þá átt, eftir þessum ótvírætt rjetta skilningi hæstv. forsætisráðherra (J. M.), þá á jeg erfitt með að mæla lengur gegn henni.