26.07.1919
Neðri deild: 17. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
39. mál, skrásetning skipa
Fjármálaráðherra (S. E.):
Vegna sambandslaganna gaf Hans Hátign konungurinn út bráðabirgðalög um skrásetning skipa. Þær breytingar, sem gerðar hafa verið eru svo sjálfsagðar og auðsæjar, að mjer þykir ekki taka að fara inn á þær, t. d., að í lögunum skuli hvarvetna koma „íslenskur fáni“ fyrir danskt flagg, og að hugtakið íslenskt skip er nú ákveðið í samræmi við ríkisviðurkenninguna.
Jeg leyfi mjer að óska þess, að frv. þessu verði vísað til sjávarútvegsnefndar, því að sú nefnd mun hafa fjallað um það í hv. Ed.