09.08.1919
Efri deild: 26. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (447)
37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg tel það illa farið, ef tafið verður óþarflega fyrir þessu frv., því að nú mun þegar vera farið að flytja út síld. Jeg vil því fastlega mælast til þess, að málið verði afgreitt til 3. umr. í dag.