18.08.1919
Efri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (516)

28. mál, hæstiréttur

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg vil að eins taka undir síðustu orð háttv. frsm. (Jóh. Jóh.) um það, að hv. deild samþ. frv. í einu hljóði. Þessi dagur er merkilegur í sögu þjóðarinnar, þegar það er ákveðið, að æðsta innlenda dómsvaldið verði flutt inn í landið.