11.08.1919
Neðri deild: 30. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (566)

14. mál, stofnun Landsbanka

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg get ekki svarað því, hvort landsstjórnin hefir tekið til greina till. endurskoðenda um að leggja opinbert fje í Landsbankann, því mál þetta er ekki í mínum verkahring. En jeg skil ekki í öðru en að fjármálastjórnin hafi gert það. Fjármálaráðh. er því miður ekki við, er bundinn í Ed.