20.08.1919
Efri deild: 35. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (721)

8. mál, mat á saltkjöti til útflutnings

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg hefi athugað brtt. nefndarinnar og get lýst yfir því, að jeg get fallist á þær, og tel þær vera sumpart til skýringar, sumpart til bóta. Jeg býst heldur ekki við því, að sektarákvæðið valdi ágreiningi milli deildanna.