30.07.1919
Neðri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (750)
3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919
Fjármálaráðherra (S. E):
Jeg vildi að eins gera athugasemd við brtt. á þgskj 207. Jeg var ekki við, þegar hv. flm. (S. S.) talaði um hana; jeg var bundinn í háttv. Ed., því þar var mál, sem jeg varð að taka þátt í umr. um. En eftir því, sem mjer hefir verið sagt af ræðu háttv flm. (S. S.), þá vil jeg láta þess getið, að jeg hefi ekkert loforð gefið um það, að þessi upphæð verði greidd. En hinu lofaði jeg, að líta með fullri sanngirni á málið. En til þess verður líka að taka tillit til annara hjeraða, athuga, hvað gert hefir verið í þeim eða hvað gera ber.