15.08.1919
Efri deild: 31. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg vil taka það fram, að þegar svo stendur á að ráðherrar, sem sæti eiga í þessari hv. deild, eru staddir í Nd. og vita eigi hvernig málum líður hjer, þá vænti jeg þess, að hæstv. forseti láti þá vita, þegar atkvgr. eru um mikilvæg mál hjer í deildinni.