26.02.1920
Efri deild: 12. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í C-deild Alþingistíðinda. (1019)

7. mál, einkaleyfi

Forseti:

Nefndin hefir lagt mikla rækt við þetta mál, og á hún þakkir skilið fyrir það. Jeg skil vel, hvað þessum 2 hv. þm. gengur til, er þeir stinga upp á því að taka málið út af dagskrá. Og jeg skil einnig, hvað frsm. (B. K.) gengur til.

En jeg vil taka til greina till. þessara hv. tveggja deildarmanna og taka málið út af dagskrá, en jeg mun, ef frsm. (B. K.) æskir þess, taka það til meðferðar á næsta fundi, sem haldinn verður seinna í dag.