18.02.1920
Efri deild: 6. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (1085)

18. mál, erfingjarenta

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vona, að frv. verði vísað til fjárhagsnefndar, því að hjer er um atriði að ræða, sem varðar hag landssjóðs. Þetta er líka viðkunnanlegra fyrir þá sök, að flm. á þar sæti, og þótt þar sje enginn lögfræðingur, þá virðist það vandalaust nefndinni að leita álits lögfræðings um atriði, sem hún er í vafa um.