10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)

Kosning til efri deildar

Benedikt Sveinsson:

Jeg er á sama máli og hv. 6. landsk. þm. (G. B.). Það verður ekki deilt um lögmæti kosningarinnar. Hins vegar skal jeg viðurkenna, að hjer er beitt brögðum og gengið á þær sættir eða samkomulag, er orðið var milli flokkanna um kjör til efri deildar, og verður það síst lofað.