19.02.1920
Neðri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
10. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur
Jón Auðunn Jónsson:
Herra forseti! Mjer virðast launakjör oddvita nokkuð fyrir utan verksvið Alþingis. Laun þeirra verða að vera í samræmi við störfin. Jeg veit um oddvita, sem hefir 1000 kr. fyrir starf sitt, og er síst of mikið. Sumstaðar er það hálfs árs verk að rækja oddvitastarfið, svo vel sje, svo það er mjög svo eðlilegt, að launin sjeu misjöfn. Að lokum vil jeg geta þess, að jeg álít, að þingið ætti ekki að taka launamál oddvitanna í sambandi við þetta frv.