23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (295)

12. mál, gullforði Íslandsbanka og bann við útflutningi á gulli

Forseti:

Í sambandi við fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv. (Sv. B.) skal jeg leyfa mjer að benda á, að lögð hefir verið fram á lestrarsalinn skýrsla frá herra Jóni Dúasyni, sem varðar mjög þetta mál. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. hafa fest sjer það í minni, þegar jeg las upp í fundarbyrjun skrá yfir fram lögð skjöl, og skal jeg í því sambandi benda á, að skýrsla þessi er ítarleg og efnismikil, og því æskilegt, að hv. þm. kynni sjer hana.