27.02.1920
Efri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

12. mál, gullforði Íslandsbanka og bann við útflutningi á gulli

Guðmundur Ólafsson:

Máli þessu var vísað til fjárhagsnefndar, og ræddi hún það á einum fundi. Fanst henni ekki ástæða til að koma með nefndarálit, en nefndin leggur til, að frv. nái fram að ganga, enda þótt henni þyki ekki mikið til allra ákvæða þess koma, eins og um útflutninginn á gulli. Jeg veit nú ekki, hvar það gull er.