10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (64)

Kosning til efri deildar

Forseti:

Úr því að eigi hafa fram komið bein mótmæli gegn þessum mannaskiftum, frá þeim, er afhent hafa B-listann, tel jeg heimilt að leyfa þau, og lýsi jeg yfir því, að í stað Sveins Ólafssonar á þeim lista kemur

Einar Árnason, og tel hann kjörinn til efri deildar.

Var nú störfum þessa þingfundar lokið, er deildir voru skipaðar, og sagði forseti fundi slitið.