27.02.1920
Neðri deild: 16. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (699)
49. mál, dýrtíðaruppbót og fleira
Sveinn Ólafsson:
Á kvöldfundi í gær hjer í deildinni var erindi, sem náskylt er þessu, þ. e. þingsályktunartillögu um flóabátaferðir um Austfirði, vísað til samgöngumálanefndar. Samvinnunefnd samgöngumálanefnda hafði gengið svo frá beiðni okkar og öðrum líkum fyrir 25. febr., að ákveða að láta ógert að mæla með þeim, og þess vegna er till. á þgskj 122 fram komin, eins og hinar, sem eru sama eðlis. Þótt það væri að eins þessi eina till., sem vísað var til nefndarinnar, þá ber að líta svo á, sem nefndin hafi átt að taka allar umsóknirnar til yfirvegunar. Nefndin skildi það að minsta kosti svo, og hefir komist að þeirri niðurstöðu, að um leið og einni beiðni er sint, verði að taka hinar til greina. Nefndin hefir þess vegna komið með till. á þgskj. 150 sem viðaukatill. við þgskj. 134 og leggur til, að 60 þús. kr. verði veittar til flóabátaferða kring um landið, og er stjórninni ætlað að úthluta þeim eftir þörfum einstakra landshluta. Umsóknirnar fóru fram á röskar 70 þús. kr., en nú hefir ein, sem nemur 11 þús. kr., verið samþ., og er þá nærhæfis að ákveða 60 þús. til viðbótar.
Það má ekki leggja áherslu á það, að umsækjendur hafa fært upphæðina niður í þeirri von, að þá fengist frekar fjárveitingin. Það má ekki líta á það, að farið er fram á 14 þús. kr. til ferða meðfram Suðurlandi, í stað 20 þús., og 20 þús. til ferða um Austfirði, í stað 30 þús. kr. Nefndin leit svo á, að 60 þús. kr. mundu nægja til að fullnægja þörfum umsækjenda. Og er fjeð einnig ætlað til þeirra, sem ekki hafa sótt, en þó hafa þörf fyrir styrkinn. Fjárveitinganefnd hefir fallist á að veita þessar 60 þús. kr., en síðar borið fram aðra till. um 80 þús. kr. og hefir samgöngumálanefndin ekki haft tækifæri til að athuga hana, og ætla jeg því ekki að ræða um hana að þessu sinni.