27.02.1920
Neðri deild: 16. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í B-deild Alþingistíðinda. (711)

49. mál, dýrtíðaruppbót og fleira

Sigurður Stefánsson:

Eftir atvikum get jeg fallist á skilning háttv. frsm. (M. P.). Og með vissri von, að stjórnin taki þetta á fjáraukalögin, skal jeg ekki fara fleiri orðum hjer um. Jeg læt þetta í ljós að eins til athugunar fyrir hæstv. stjórn.