26.02.1920
Neðri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

Stjórnarskipti

Bjarni Jónsson:

Jeg gleymdi einu atriði um utanríkismál. Jeg vil skora á stjórnina að láta Ísland ekki ganga í þjóðabandalagið, nema með sömu skilyrðum og jeg heyri að Sviss hafi sett, að fá að halda hlutleysi sínu.