26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í C-deild Alþingistíðinda. (858)
48. mál, laun embættismanna
Gunnar Sigurðsson:
Jeg skal ekki lengja neitt umr. um þetta mál. Jeg skal að eins geta þess, að jeg er þess fullviss, að skilningur hv. fjárveitinganefndar er rjettur á tilætlun síðasta þings.
Annars furðar mig á þeim ummælum hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.), að þetta geti beðið. Hjer er um fátæka menn að ræða, og eflaust sjer hann það við betri athugun, að þeim, sem þurfa laun sín til nauðsynlegra útgjalda, getur orðið sú bið nokkuð löng.
Hjer er ekki um nein aukin útgjöld að ræða, heldur rjetta og sjálfsagða skýringu á launalögunum frá í fyrra.