27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (901)

41. mál, Íslensk peningaslátta

Karl Einarsson:

Jeg vil að eins gera fyrirspurn til stjórnarinnar. Það er þá, að ef málinu er vísað til stjórnarinnar, hvort hún álíti sjer heimilt að verja fje til undirbúnings málinu? Ef hún svarar því játandi, finst mjer mega bíða að samþykkja frv. Jeg vil einnig taka það fram, að jeg treysti stjórninni fullkomlega í þessu máli.