28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (917)
57. mál, peningamálanefnd
Forsætisráðherra (J. M.):
Þetta mál hafði komið til umtals bæði við bankana og verslunarráð Íslands. Mintist jeg fyrst á það við bankana og verslunarráðið, hvort heppilegt mundi vera að setja slíka nefnd án laga. Eins og jeg tók fram áður, óska báðir bankarnir þessa; er það ekki vegna gengismismunarins eingöngu. Það er ekki aðalatriðið, heldur hitt, að peningum sje ekki eytt til kaupa á ónauðsynlegri vöru, en nauðsynjavara sitji má ske á hakanum.
Jeg hygg, að þótt stjórnin hefði sett nefnd án laga til að gera þessar ráðstafanir, þá hefðu ráðstafanir slíkrar nefndar orðið kraftlitlar. Jeg vona því, að þingið samþykki þetta, og vil jeg í því sambandi leggja áherslu á, að bankarnir báðir telja þetta nauðsyn.