26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í C-deild Alþingistíðinda. (952)

53. mál, fótboltaferð um Austfirði

Flm. (Sveinn Ólafsson):

Háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) taldi það einskonar nýung, að bátur þessi tæki að sjer landpóstferðir. Jeg veit ekki betur en að flóabáturinn austanlands hafi einnig tekið að sjer póstferðir og með því sparað landpóstferðir. Er þetta því engin mikilvæg upplýsing í málinu og rjettlætir ekki málstað hv. þm. (J. A. J) nema síður sje, því Austfirðir eru þó stærra og fólksfleira svæði en Norður-Ísafjarðarsýsla.