26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (953)

53. mál, fótboltaferð um Austfirði

Magnús Pjetursson:

Jeg vildi að eins gera stutta athugasemd, til að leiðrjetta misskilning, sem hefir gætt hjá hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), viðvíkjandi Ísafjarðardjúpsbátnum. Þar er sem sje um aðalpóstinn vestanlands að ræða. Og yrði hann að falla niður, ef ekki yrði haldið uppi þessum ferðum. Því mega ferðir þessar með engu móti falla niður.