21.02.1921
Neðri deild: 5. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

13. mál, hreppskilaþing

Fjármálaráðherra (M. G.):

Í raun og veru er ekki ástæða til að vísa þessu litla frv. til nefndar vegna þess sjálfs, heldur vegna sambands þess, sem það er í við frv. um fasteignaskattinn. Jeg legg því til, að frv. þessu verði vísað til þeirrar nefndar, sem það mál hefir með höndum. Hins vegar er óþarft að fjölyrða um frv. Það skýrir sig sjálft.