30.04.1921
Neðri deild: 59. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)
41. mál, fjárlög 1922
Þorsteinn Jónsson:
Háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að samgöngumálanefndinni hlyti að vera það ljóst, að hallinn á Sterling 1922 gæti ekki orðið svona mikill, sem hún gerir ráð fyrir. Jeg get ekki skilið, hvað hefir vakað fyrir háttv. þm. (M. K.), er hann hjelt, að nefndin gerði þetta í þeim tilgangi að blekkja deildina, nema hann haldi, að eigi að skrifa af verði skipsins, sem ekki væri fjarri sanni að væri gert, því að það er beinlínis villandi að reikna verð skipsins hærra en það er í raun og veru.
Jeg skal annars taka það fram, að nefndinni er ekkert kappsmál, að till. verði samþykt. því að útgjöldin verða jafnmikil, hvort sem hún verður samþykt eða ekki, og vil jeg benda á það, að hún tiltekur „alt að 400 þús.“.
Eins og jeg tók fram áðan, þá er tilgangur tillögumanna sá, að fara sem næst því er greiða þarf, en hallinn er áætlaður svo mikill, að víst sje, að ekki þyrfti að greiða meira.
Það getur verið, að sumum háttv. þdm. þyki það skemtilegra að hafa svo lágt áætluð útgjöld ríkissjóðs, að stjórnin verði að bæta við, þegar hún fer að borga út, og láti þá viðbót svo koma á aukafjárlögum. En mjer fyrir mitt leyti þykir hitt skemtlegra, að fara sem næst sanni með fjárlögin.
Því að hitt er aðeins blekking, til að láta fjárlögin líta betur út, svo þjóðinni sýnist hallinn minni en hann er í raun og veru.
Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) tók það skýrt fram, að hann ætlaðist til, að hallinn yrði settur í aukafjárlög, og vildi því halda sjer við frv.-upphæðina. Mjer skildist á honum, að hann áliti, að hallinn mundi verða meiri, en teldi samt rjett að halda sjer við frv.
Það voru ekki mín orð, að jeg áliti rjett að setja Sterling upp. Þvert á móti hefi jeg tekið það fram áður, að við verðum að hafa strandferðirnar, hvað sem þær kosta. En við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti.
Vitanlega verður það altaf ónóg að hafa eitt skip, en ef við eigum að komast fram úr þessu öngþveiti, verðum við að slá af kröfunum, og þá jafnvel þeim, sem við höfum til nauðsynlegra þarfa. Það væri auðvitað heppilegast að hafa tvö skip, sem altaf gengju. Og þegar samgmn. byrjaði starf sitt, þá kom þetta til mála, en hún sá sjer ekki fært að leggja með því, að svo verði á næsta ári.
Það er ómögulegt að segja, hvað hallinn verður mikill 1922. En hr. E. Nielsen framkvæmdastjóri Eimskipafjelagsins, og sem jafnframt er framkvæmdastjóri landssjóðsskipanna, hefir gefið þær upplýsingar, að hallinn á ferðum Sterlings í ár muni verða um 400 þús. kr. Af þessu verður það sjeð, að þrátt fyrir það, þótt farþegarúmin á skipinu sjeu troðfull í hverri ferð, þá nægir það ekki upp í reksturskostnaðinn, nema farmurinn sje nægur líka. En þrátt fyrir það, þótt þetta haldi svo áfram, þá tel jeg það ekki ná nokkurri átt að láta Sterling hætta þessum ferðum sínum, vegna flutninganna.