03.05.1921
Efri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

41. mál, fjárlög 1922

Sigurður Eggerz:

Eins og hæstv. fjrh. (M. G.) tók fram, þá er ómögulegt að segja um það, hvernig fer um tekjufrv. hæstv. stjórnar á þessu stigi, og því ómögulegt fyrir fjárhagsnefnd enn að gera sjer grein fyrir tekjuhliðinni, en hún mun leitast við við 2. umræðu að koma með álit sitt um tekjuhliðina.